Víkingar unnu Jötna 12 - 2

Orri Blöndal á ferðinni.  Myndina tók Sigurgeir Haraldsson í síðustu viðureign liðanna
Orri Blöndal á ferðinni. Myndina tók Sigurgeir Haraldsson í síðustu viðureign liðanna

Í kvöld mættust heimaliðin Víkingar og Jötnar í Skautahöllinni á Akureyri.   Eftir að hafa tapað síðasta leik voru það Víkingar sem unnu að þessu sinni 12 – 2 sigur.  Víkingarnir voru brenndir eftir tapið síðast og mættu einbeittari til leiks að þessu sinni.  Veigar Árnason, ungur markmaður sem er að taka sín fyrstu skref í meistaraflokki, hóf leikinn fyrir Jötna og fékk á sig nokkur mörk strax í upphafi leiks áður en honum var skipt út fyrir Einar Eyland.  Þeir stóðu sig báðir engu að síður vel en á tímabili rigndi yfir þá skotum.

 

Loturnar fóru 6 – 0, 3 – 0 og 3 – 2, en Jötnarnir sóttu í sig veðrið eftir því sem leið á leikinn.  Sem fyrr var töluverður hiti í mannskapnum og lítið fór fyrir jólaandanum þrátt fyrir að um innanfélags leik væri að ræða.  Þónokkuð var umbrottvísanir og tveir leikmenn voru sendir í sturtu, einn úr hvoru liði.  Víkingamegin var það Andri Mikaelsson en Jötnamegin var það gamli jaxlinn Geir Borgar Geirsson.


Mörk/stoðsendingar Víkinga:

Sigurður S. Sigurðsson 4/1
Andri Freyr Sverrisson 2/2
Josh Gribben 2/2
Jóhann Már Leifsson 1/2
Orri Blöndal 1/2
Andri Már Mikaelsson 1/1
Steinar Grettisson 1/1
Gunnar D. Sigurðsson 0/1
Sigmundur Sveinsson 0/1

Mörk/stoðsendingar Jötna:

Jón B. Gíslason 1/1
Stefán Hrafnsson 1/1