Víkingar unnu Björninn 6 - 1 í gær

Ljósm: Ásgrímur Ágústsson
Ljósm: Ásgrímur Ágústsson

 

Leikurinn fór vel af stað og liðin skiptust á að sækja en strax á fyrstu mínútum leiksins skoraði Eyfirðingurinn Steinar Grettisson fyrsta mark leiksins eftir varnarmistök Bjarnarmanna.   Gestgjafarnir jöfnuðu leikinn skömmu síðar í „power play“ en þar var á ferðinni hinn hárprúði finnski varnarmaður Mika Moilanen.  Þetta reyndist eina mark þeirra í leiknum og eftirleikurinn var Víkinganna.   Áður en fyrstu lotu lauk setti Leðjubjörn Jakobsson sigurmarkið sem líkt og mark Bjarnarmanna, kom í „power play“.

Í 2.lotu réðu Víkingar lögum og lofum á svellinu og bættu við þremur mörkum frá hinum barnunga Sigurði Reynissyni, Sigmundi Sveinssyni og Andra Sverrissyni.  Leikurinn jafnaðist aftur í síðustu lotunni en síðasta markið í leiknum skoraði Stefán Hrafnsson og innsiglaði glæsilegan 6 – 1 sigur á sterku Bjarnarliði sem frumsýndu í gær nýjar keppnistreyjur.

Víkingar léku vel en geta gert miklu betur.  Nokkur heppni var með liðinu á sama tíma og lítið gekk gestgjöfunum í haginn.  Það var jákvætt að 6 leikmenn skyldu skora mörkin 6 og allir fengu að spila.  Yngsti varnarmaður liðsins, Ingþór Árnason átti bráðskemmtilega tæklingu undir lok leiks þegar sóknarmaður Bjarnarins Birgir Hansen fór heilt heljarstökk yfir hann á bláu línunni.  Engum varð meint af en úr varð nokkurt sjónarspil sem gaman væri að sjá í endursýningu.

Víkingar skríða nú hægt og rólega upp stigatöfluna eftir slæma byrjun.  Ef áfram heldur sem horfir stefnir í jafna og spennandi keppni efstu þriggja liðinna um sæti í úrslitum.

Meðfylgjandi mynd tók Ásgrímur Ágústsson fyrr í haust, en á henni má sjá Lars Foder á leið inn í markið á eftir pekkinum.