Úrslitakeppnin í íshokkí hefst um helgina

Úrslitakeppnin í Hertz-deild kvenna er að hefjast en fyrsti leikur er á á sunnudag, 25. febrúar kl. 16:45 í Skautahöllinni á Akureyri. SA mætir þar Fjölni en liðin voru efst í deildarkeppninni þar sem SA vann deildarmeistaratitilinn með 42 stig en Fjölnir var með 24 stig. Leikið verður sitt á hvað þar sem SA byrjar á heimavelli en vinna þarf þrjá leiki til þess að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí.

Miðaverð er 2000 kr. en frítt inn fyrir 13 ára og yngri. Hægt er að tryggja sér miða í forsölu í Stubb. Við hvetjum fólk til þess að mæta í rauðu og litum þannig stúkuna í okkar lit.

Sjoppan samlokur svo engin þarf að fara svangur heim. Áfram SA!

 

Leikirnir í úrslitakeppninni:

Leikur 1: Sunnudaginn 25. febrúar í Skautahöllinni Akureyri kl. 16:45

Leikur 2: Þriðjudaginn 27. febrúar í Egilshöll kl. 19:45

Leikur 3: Þriðjudaginn 29. febrúar í Skautahöllinni Akureyri kl. 19:30

* 4. leikur 2. mars í Egilshöll kl. 17:30

* 5 leikur 5.mars í Skautahöllinni Akureyri kl. 19:30

* leikir 4 og 5 ef til koma ef annað liðið sé ekki búið að vinna 3 leiki.