Úrslitakeppni karla hefst á þriðjudag

Úrslitakeppnin í Hertz-deild karla í íshokkí hefst næsta þriðjudag 21. mars. SA Víkingar taka þá á móti Skautafélagi Reykjavíkur en SA Víkingar eru deildarmeistarar og byrja því á heimavelli en vinna þarf þrjá leiki til þess að tryggja sér Íslandsmeistaratitlinn í íshokkí. Leikurinn á þriðudag hefst kl. 19:30.
Miðaverð er 1500 kr. en frítt inn fyrir 16 ára og yngri. Hægt er að tryggja sér miða í forsölu í Stubb. Við hvetjum fólk til þess að mæta í rauðu og litum þannig stúkuna í okkar lit.
Sjoppan verður opin svo engin þarf að fara svangur heim. Áfram SA!
 
Leikirnir í úrslitakeppninni:
Leikur 1: Þriðjudaginn 21. mars á Akureyri kl. 19:30
Leikur 2: fimmtudaginn 23. mars í Reykjavík kl. 19:45
Leikur 3: sunnudaginn 26. mars á Akureyri kl. 16:45
* 4. leikur 28. mars í Reykjavík.
* 5 leikur 30. mars á Akureyri.
* leikir 4 og 5 ef til koma ef annað liðið sé ekki búið að vinna 3 leiki.