U18 kvennalandslið Íslands hefur leik á HM í Búlgaríu á morgun

U18 kvennalandslið Íslands í íshokkí hefur á heimsmeistaramótinu í íshokkí í 2. deild á morgun en mótið fer fram í Sófíu í Búlgaríu. Fyrst i leikur liðsins er gegn Belgíu i á morgun fimmtudag kl. 14.30 á íslenskum tíma. Auk Íslands eru í riðlinum eru Belgía, Búlgaría, Eistland, Kazakstan og Nýja-Sjáland. Fylgjast má með dagskránni ásamt stöðu mótsins á heimsíðu alþjóða íshokkísambandsins.

Leikjadagskrá Íslands.

26. janúar kl. 14:30  Ísland - Belgía

27. janúar kl. 11:00  Ísland - Nýja-Sjáland

29. janúar kl. 11:00  Ísland - Eistland

31. janúar kl. 18:00  Ísland - Búlgaría

1. febrúar kl. 18:00  Ísland - Kazakstan

SA á tólf fulltrúa í liðinu auk þess koma liðsstjórinn Margrét Aðalgeirsdóttir og heilbrigðisstarfsmaðurinn Sólveig Hulda Valgeirsdóttir úr okkar röðum. Þjálfarar liðsins eru þau Laura-Ann Murphy, Alexandra Hafsteinsdóttir og Vladimir Kolek.

Leikmenn SA í liðinu:

  • Aðalheiður Anna Ragnarsdóttir
  • Amanda Ýr Bjarnadóttir
  • Aníta Ósk Sævarsdóttir
  • Eyrún Arna Garðarsdóttir
  • Friðrika Stefánsdóttir
  • Heiðrún Helga Rúnarsdóttir
  • Inga Rakel Aradóttir
  • Kolbrún Björnsdóttir
  • Magdalena Sulova
  • María Guðrún Eiríksdóttir
  • Ragnheiður Alís Ragnarsdóttir
  • Sveindís Marý Sveinsdóttir

 

Áfram Ísland!