Tvö töp gegn Birninum


Um síðastliðna helgi fór fram helgarmót hjá 3. flokki og var mótið liður í Íslandsmótinu. Aðeins SA og Björninn mættu til leiks.

Í frétt á vef ÍHÍ eru úrslit allra leikja hjá SR skráð sem 0-10 tap. Fréttaritari hefur þó ekki upplýsingar um það hvort SR verður með í Íslandsmótinu í vetur þrátt fyrir að hafa ekki náð í lið fyrir þetta mót.

Björninn vann fyrri leikinn gegn SA nokkuð örugglega, 7-2, ein sá seinni var jafnari og þar átti okkar lið möguleika, en varð þó að játa sig sigrað að lokum, 7-5.