Tvö SA-lið syðra um helgina

Mynd: Ásgrímur Ágústsson (21.12.2013)
Mynd: Ásgrímur Ágústsson (21.12.2013)


Meistaraflokkur kvenna og 3. flokkur eru í höfuðborginni að spila hokkí. Leik Jötna gegn Húnum, sem átti að vera í Egilshöllinni í kvöld, hefur verið frestað um óákveðinn tíma.

Kvennalið SA í meistaraflokki mætir Birninum í mikilvægum leik í Egilshöllinni. Sá leikur hefst kl. 19. Keppni liðanna um deildarmeistaratitilinn og þar með oddaleiksréttinn í úrslitum er jöfn og spennandi. Björninn hefur nú 21 stig eftir 9 leiki, en SA hefur 18 stig eftir 8 leiki. - Staðan

Lið 3. flokks mætir SR og Birninum á helgarmóti í Skautahöllinni í Laugardal. Liðið leikur tvo leiki í kvöld og tvo í fyrramálið. - Dagskrá mótsins