Tvö frá SA valin íshokkífólk ársins af ÍHÍ

Myndir: Ásgrímur Ágústsson
Myndir: Ásgrímur Ágústsson


Þau Jónína Margrét Guðbartsdóttir og Ingvar Þór Jónsson hafa verið útnefnd sem íshokkifólk ársins 2013 af Íshokkísambandi Íslands.

Á vef ÍHÍ er sagt frá valinu. Eftirfarandi textar eru beint úr þeim fréttum. Ef smellt er á nöfnin opnast viðkomandi fréttir á vef ÍHÍ:

Jónína Margrét Guðbjartsdóttir
"Jónína varð deildar- og íslandsmeistari með Skautafélagi Akureyrar á síðastliðnu keppnistímabili, sem  er tólfti íslandsmeistaratitill hennar. Jónína Margrét lék einnig með landsliðinu á heimsmeistaramóti Alþjóða Íshokkísambandsins á Spáni sl. vor og hefur verið valin í landsliðsúrtak sem undirbýr sig fyrir keppni á næsta heimsmeistaramóti, sem haldið verður í Reykjavík í mars á næsta ári. 

Jónína Margrét hefur leikið íshokkí frá stofnun kvennaliðs Skautafélags Akureyrar vorið 2000 og orðið íslandsmeistari með liðinu í öll þau skipti sem félagið hefur unnið þann titil eða alls 12 skipti. Hún hefur og átt fast sæti í landsliði Íslands síðastliðin ár. Jónína Margrét hefur lengst af spilað sem varnarmaður og hefur verið bæði fyrirliði og aðstoðarfyrirliði hjá SA og aðstoðarfyrirliði landsliðsins.  Auk þess að að leika íshokkí hefur Jónína verið virk í starfi íshokkíhreyfingarinnar í gegnum árin, bæði þjálfað yngri flokka félagsins og einnig var hún ritari í stjórn Íshokkídeildar Skautafélags Akureyrar veturna 2004-2005 og 2005-2006."


Ingvar Þór Jónsson
"Ingvar Þór Jónsson varð með liði sínu, Skautafélagi Akureyrar, bæði deildar- og íslandsmeistari á síðasta tímabili,  ásamt því að vera spilandi þjálfari liðsins. Á heimsmeistaramóti  sem haldið var í Króatíu í apríl síðastliðnum náði íslenska liðið sínum besta árangri til þessa, þegar liðið varð í 3ja sæti í sínum riðli. Þar var Ingvar Þór fyrirliði landsliðsins og lykilmaður í vörninni.

Ingvar Þór hefur leikið alla landsleiki sem karlalandslið Íslands hefur spilað frá því að liðinu var hleypt af stokkunum 1999. Auk þess hefur Ingvar verið fyrirliði liðsins í 12 ár. Ingvar hefur á ferli sínum fimm sinnum verið valinn verðmætasti leikmaður karlalandsliðsins á heimsmeistaramótum ásamt því að vera varnarmaður mótsins á HM-móti sem haldið var á Íslandi árið 2006. Ingvar hefur unnið að þjálfun auk þess að gegna trúnaðarstörfum fyrir íshokkíhreyfinguna, sat t.d. í stjórn Íshokkísambands Íslands þar til í vor.