Tveir leikir í 3. flokki í dag: SA - Björninn

Mynd: Ásgrímur Ágústsson
Mynd: Ásgrímur Ágústsson


Lið SA og Bjarnarins í 3. flokki eigast tvívegis við í Skautahöllinni á Akureyri í dag. Leikirnir eru í Íslandsmótinu í íshokkí, en SR mætir ekki með lið norður að þessu sinni. 

Fyrri leikur liðanna hefst kl. 16.30, en af þeim sökum verður almenningstími styttur og aðeins opið til kl. 16 í dag.

Eftir því sem heimasíðan kemst næst hefst seinni leikur liðanna kl. 19.30.