Tilkynning frá Íþróttaráði

Hin árlega úthlutun úr Afreks- og styrktarsjóði Akureyrar fer fram í móttöku sem haldin verður í Íþróttahöllinni í dag þriðjudaginn 28. desember kl. 16:15 þar sem afhent verða viðurkenningarskjöl Íþróttaráðs Akureyrar til hvers félags fyrir sig.

Árangur akureyskra íþróttamanna var góður á árinu. Samkvæmt upplýsingum sem borist hafa til stjórnar sjóðsins hafa 212 íslandsmeistaratitlar unnist á árinu og einnig voru margir Akureyringar valdir til leiks með landsliðum í hinum ýmsu íþróttagreinum. Það er von Íþróttaráðs að þessir glæsilegu afreksmenn, þjálfarar þeirra og forystumenn íþróttahreyfinga á Akureyri sjái sér fært að koma til athafnarinnar.
Góðar veitingar verða fram bornar í boði Akureyrarbæjar.

Við í Skautafélagi Akureyrar eigum Íslandsmeistara í krullu ásamt meistaraflokkum karla og kvenna og allir verða að mæta í sínu fínasta pússi - það er skyldumæting!