Skiptimarkaður hokkídeildar

Mynd: EFP
Mynd: EFP

Föstudaginn 8. nóvember kl. 16.00-18.00 verður tekið við búnaði fyrir skiptimarkað hokkídeildar. Skiptimarkaðurinn verður opinn kl. 11.00-14.00 laugardaginn 9. nóvember og sunnudaginn 10. nóvember.

Þeir sem hafa áhuga á að selja búnað vinsamlegast komið með hann í Skautahöllina föstudaginn 8. nóvember kl. 16.00-18.00. Einnig verður tekið á móti búnaði báða markaðsdagana, en eftir því sem þið komið með búnaðinn fyrr því meiri líkur eru á að þið losnið við hann.

Ef þið vitið af einhverjum ser ekki lengur að æfa en á búnað heima, biðjið þá viðkomandi endilega að hafa samband.

Upplýsingar gefur Anna Guðný í síma 897 6074 og í netfanginu sa-foreldrar@simnet.is.

Áríðandi er að þeir sem eiga búnað á markaðnum komi seinni hluta sunnudags og nálgist peninginn eða búnaðinn ef hann ekki selst.

Passið að koma með búnaðinn vel merktan með verði og nafni.