Silvía með SA í vetur

Silvía Rán Björgvinsdóttir
Silvía Rán Björgvinsdóttir

Silvía Rán Björgvinsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í íshokkí, er komin heim og mun spila fyrir SA í vetur. Silvía er að snúa til baka úr erfiðum meiðslum sem hún hlaut síðasta vetur og hafa haldið henni af ísnum en ætlar sér að koma sér aftur á strik og taka slaginn í Hertz-deildinni með SA og kemur einnig inn í þjálfarateymi SA.

Silvía er 24 ára sóknarmaður og hefur verið ein allra besta íshokkíkona sem Íslands síðustu ár en hún kemur frá Hammarby IF í Svíþjóð þar sem hún spilaði í HockeyAllsvenskunni síðasta tímabil. Silvía er uppalin hjá Skautafélagi Akureyrar og spilaði með SA fram til ársins 2019 og var yfirburðarleikmaður í deildinni á þeim tíma en hún skoraði til að mynda á einu tímabilinu með SA 31 mark og átti 30 stoðsendingar í 12 leikjum. Silvía fór frá SA til Södertalje SK í Svíþjóð þar sem hún hélt áfram uppteknum hætti og skoraði 33 mörk í 25 leikjum á sínu fyrsta tímabili erlendis. Þaðan fór Silvía til Norwich University í NCAA III háskóladeildina í Bandaríkjunum og árið eftir til Göteborg HC í Svíþjóð og varð þá fyrsti íslenski íshokkí leikmaðurinn sem spilar í einni sterkustu deild heims.

Í viðtali við SAsport segir Silvía að hún hafi byrjaði að hugsa um að koma heim til Íslands eftir að hún meiddist illa ljóst varð að hún myndi missa bæði af úrslitakeppninni í Svíþjóð og heimsmeistaramótinu með kvennalandsliði Íslands. Þegar hún frétti svo af áhuga SA um að semja við hana og fá hana inn í þjálfunina varð hún viss um að þetta væri rétta skrefið. „Ég er virkilega spennt fyrir því að koma núna til þess að miðla minni reynslu og þekkingu og þá sérstaklega til að styðja ungu stelpurnar sem eru núna að fá stærri hlutverk og hjálpa þeim að þróa sig og ná sínum markmiðum. Mig langar lika að að setjafordæmi og sýna hvernig er hægt að ná lengra og hækka standardin á því hvernig við æfum. Ef ég get svo hjálpað liðinu að vinna leiki og keppa um titla það er þá bara bónus ofan á allt hitt.“

Silvía mun ekki aðeins leika fyrir SA heldur hefur hún einnig verið ráðin þjálfari kvennaliðs SA og þjálfari U16 liðs SA tímabundið í það minnsta. Silvía mun því stýra og spila með kvennaliði SA í fyrsta deildarleiknum í Hertz-deildinni sem er gegn Fjölni og fer fram í Skautahöllinni á Akureyri nú um helgina.

Ljóst er að heimkoma Silvíu er gríðarleg mikilvæg fyrir SA liðið sem hefur misst marga máttarstólpa úr liðinu frá síðasta tímabili. En heimkoma Silvíu eru líka frábær fyrir íshokkunendur enda augljóslega gríðarlega flínk og skemmtilegur leikmaður á að horfa og nú sérstaklega þegar útlit er fyrir að Hertz-deild kvenna verði sú mest spennandi í áraraðir.