SA vs SR 2.flokkur 4-6 og 5-3 um nýliðna helgi

Um síðustu helgi fór fram hér á Akureyri svo kallaður „Tvíhöfði“ í 2.flokki karla. SA mætti SR fyrst á laugardeginum kl. 19,00 og svo á sunnudeginum á sama tíma.

Fyrri leikurinn tapaðist með 4 mörkum gegn 6. SR-ingar áttu fyrstu lotuna skuldlaust (1-4) aðra lotuna átti SA (2-1) og jafnræði  var með liðunum í þeirri þriðju (1-1).

Mörk og stoðsendingar,

Ingþór 2/0, Baldvin 1/0, Matti 1/0, Heiðar 0/3, Siggi Reynis 0/2, Róbert 0/1

SA átti 43 skot á mark en SR 19, refsingar  SA 6 mín. en SR 34mín

Seinni leikurinn vannst hinsvegar með 5 mörkum gegn 3 (3-1)(0-1)(2-1)

Mörk og stoðsendingar,

Siggi Reynis 3/1, Ingþór 1/3, Siggi Þorsteins 1/0

SA átti 39 skot á mark en SR 24, refsingar  SA 8 mín. en SR 14mín

Nánari tölulegar upplýsingar má finna hér og stöðuna í 2.flokki er að finna hér