Mammútar höfðu betur í framlengingu


Þriðja umferð Akureyrarmótsins í krullu hófst í gær með leik Mammúta og Ice Hunt, en leik Garpa og Freyja var frestað.

Leikur Mammúta og Ice Hunt var spennandi, Ice Hunt hafði yfirhöndina framan af, en Mammútar náðu að jafna með góðum endaspretti og skora svo úrslitastigið í aukaumferð.

Úrslit:
Mammútar - Ice Hunt 7-6

Mammútar og Ice Hunt eru nú jöfn og efst með 2 vinninga, en Garpar og Freyjur eru með 1 vinning. 

Öll úrslit og leikjadagskrá (excel).