Mammútar bikarmeistarar

Mammútar: Sveinn, Jens, Jón Ingi.
Mammútar: Sveinn, Jens, Jón Ingi.

Lið Mammúta fór ósigrað í gegnum þriðja mótið á þessu hausti og vann þar með Magga Finns Bikarmót Krulludeildar. 

Segja má að Mammútar hafi nánast gert út um leikinn í annarri umferð þegar þeir skoruðu sex stig og komust í 7-0. Það er erfitt að vinna upp slíkan mun í stuttum leik og lokatölur urðu 9-1.

Mammútar unnu þar með þriðja mótið á þessu hausti og eru ósigraðir það sem af er þessu keppnistímabili. 

Mammútar
Sveinn H. Steingrímsson, Jens Kristinn Gíslason og Jón Ingi Sigurðsson. 


Freyjur
Martin Gossweiler, Hugrún Ósk Ágústsdóttir, Rannveig Jóhannsdóttir og Svanfríður Sigurðardóttir.