Magga Finns Bikarmót Krulludeildar: Mammútar áfram

Mynd: Ásgrímur Ágústsson (Ice Cup 2013)
Mynd: Ásgrímur Ágústsson (Ice Cup 2013)


Fyrsta umferð í Magga Finns Bikarmóti Krulludeildar fór fram í gær. Reynar aðeins einn leikur spilaður, því þátttökuliðin eru aðeins fimm.

Það voru Mammútar og Ice Hunt sem mættust í fyrstu umferðinni og höfðu Mammútar sigur, 5-2. Garpar, Freyjur og Víkingar sátu hjá og nú bætast Mammútar í hóp þessara liða sem fara í undanúrslitin mánudagskvöldið 16. desember. Dregið verður um það hvaða lið mætast þegar liðin mæta til leiks á mánudagskvöldið.

Bikarmótið (excel-skjal)