Magga Finns Bikarmót Krulludeildar: Breyttir leikdagar

Það vantar þennan. Hann er í fríi.
Það vantar þennan. Hann er í fríi.


Vegna forfalla tókst ekki að spila leik 1. umferðar bikarmótsins í gærkvöldi eins og áætlað var. Í stað þess að viðkomandi lið þyrfti að gefa leikinn var því ákveðið að færa til leikdagana.

Mammútar gátu ekki mætt til leiks gegn Ice Hunt í gærkvöldi og var því, að höfðu samráði við hlutaðeigandi, ákveðið að færa aðeins til leikdagana.

Mótið spilast því svona:
1. umferð, miðvd. 11. desember: Mammútar - Ice Hunt
Uundanúrslit: Mánudagskvöldið 16. desember
Úrslitaleikur: Miðvikudagskvöldið 18. desember (eða síðar eftir samkomulagi liðanna)

Þetta hefur reyndar þann kost í för með sér að fjölmennasta umferðin (undanúrslit) lendir á mánudagskvöldi, sama kvöld og krullumaður ársins verður opinberaður og sama kvöld og ætlunin er að halda stuttan fund til að ræða um framhaldið í krullunni eftir áramótin.