Landsliðið karla leikur æfingaleik við Gentofte

Í kvöld lék landslið karla æfingaleik við Gentofte sem liður í undirbúningi að heimsmeistarakeppninni. Leikurinn var hraður og skemmtilegur á að horfa. Danir höfðu betur, 5-4, en jafnt var á öllum tölum upp í 3-3. Litlu munaði að drengjunum tækist að jafna á síðustu mínutunum.Íslenska liðið spilaði á fjórum línum allan leikinn og hélt uppi miklum hraða út allar þrjár loturnar.  Mörk íslenska liðsins skoruðu Guðmundur Ingólfsson, Guðmundur Björgvinsson, Jónas Breki Magnússon og Elvar Jónsteinsson.
Liðið heldur til Serbíu á morgun en heimsmeistarakeppnin hefst á mánudag.