Kristalsmót C-keppenda - laugardagur

Ferðin suður og fyrri keppnisdagur gengu mjög vel hjá 3.og 4. hópi. Fararstjórar segja börnin skemmta sér stór vel og styðji hvert annað dyggilega.Þar að auki skiluðu þrjú verðlaun sér í hús á fyrsta keppnisdegi. Sjá nánar hér. Emilía Rós Ómarsdóttir lenti í 2.sæti í flokki 8. ára og yngri C og Sóldís Diljá Kristjánsdóttir fékk líka silfur, í flokki 10 ára og yngri C. Jóhann Jörgen Kjerúlf fékk gull í flokki 9 ára og yngri drengja. Þetta er alveg frábær árangur! Í dag, sunnudag, keppa svo okkar krakkar í 12C, 13C og 14C.