Kosning milli þriggja nafna á félagssal

Stjórn Skautafélags Akureyrar auglýsti eftir tillögum um nafn á nýja félagssalinn í Skautahöllinni og bárust 11 mismunandi tillögur að nafni á salinn. Stjórnin hefur nú valið þau 3 nöfn sem þykja álitlegust og bjóða nú fólki að kjósa um nafnið á salnum. Nöfnin sem kosið verður um:

Skjaldborg - stofnstaður Skautafélags Akureyrar

Miðgarður - Vísan í norræna goðafræði

Krókeyrararstofa - Vísan í staðsetningu félagssvæðisins

Atkvæði má senda á skautahollin@sasport.is eða taka þátt í kosningunni á facebook síðu Skautafélags Akureyrar.