Keilukvöld krullufólks

Brostu! Þér verður rúllað...
Brostu! Þér verður rúllað...


Annað kvöld, miðvikudagskvöldið 16. október, verður engin krulluæfing þar sem við skiptum á laugardagstímanum við mfl. karla í hokkí. Í staðinn ætlum við að hittast í Keilunni, spjalla og taka leik... eða eitthvað.

Gott væri ef þau ykkar sem hafið hugsað ykkur að mæta mynduð hafa samband við Davíð eða kvitta á Facebook-síðu Krulludeildar. Mæting um það bil eða rétt fyrir kl. 20.30.