Júlía Rós heiðruð fyrir framúrskarandi árangur

Júlía Rós og Sergey yfirþjálfari
Júlía Rós og Sergey yfirþjálfari

Júlía Rósa Viðarsdóttir var heiðruð fyrir framúrskarandi árangur á árinu en líka framlag sitt til listskautaíþróttarinnar hjá SA á jólasýningunni á sunndag. Júlía sem er nú þjálfari hjá deildinni lagði skautana á hilluna síðasta vor eftir að hafa klárað sitt besta skautatímabil og sett mark sitt á skautasöguna.

Júlíu Rós hóf árið með keppni á Norðurlandamótinu sem fram fór í Hørsholm  í Danmörku í janúar þar sem hún 8. sæti og jafnaði þar með bestu röðun íslenskra skautara á Norðurlandamóti í Junior flokki. Júlía fékk 108.22 stig sem er næst hæsta skor sem íslenskur keppandi hefur náð á norðurlandamóti í flokknum. Í febrúar keppti Júlía á Reykjavíkur leikunum og vann gull í Junior flokki með 112.80 stig. Í mars keppti Júlía svo á EYOWF (Ólympíuleikar æskunnar) Vuokatti í Finnlandi þar sem hún náði sínum hæstu stigum á alþjóðlegu móti og setti íslenskt stigamet á EYOWF móti með 115.22 stig.

Júlía er margfaldur Íslandsmeistari í Advanced Novice og Junior flokki og náði sínu hæsta stigaskori á móti þegar hún fékk 128.37 stig á Reykjavíkurleikunum árið 2021 sem var á þeim tíma næst hæsta stigaskor sögunnar í flokknum. Júlía Rós á stigament íslenskra skautara á Grand Prix mótaröðum frá haustinu 2021 þegar hún fékk 111.54 stig á Grand Prix í Courchevel í Frakklandi.

(Júlía Rósa ásamt yfirþjálfara listskautadeildar Sergey mynd: Unnur Anna)