Jamie Dumont er nýr aðalþjálfari íshokkídeildar Skautafélags Akureyrar

Jamie Dumont hefur verið ráðinn aðalþjálfari íshokkídeildar Skautafélags Akureyrar. Jamie eins og hann er kallaður hefur störf fyrir félagið strax og stýrir sínum fyrstu æfingum í dag. Jamie verður aðalþjálfari meistaraflokka félagsins ásamt því að vera þróunarstjóri unglingaflokkanna U18, U16 og U14.

Jamie er fæddur 1973 í Bandaríkjunum. Jamie er reynslumikill þjálfari en Jamie starfaði síðast sem ráðgjafi fyrir Ítölsku íshokkí landsliðin á síðasta tímabili ásamt því að vera yfir leikmannaþróun. Fyrir það var hann yfirþjálfari Bowdoin College í bandaríska NCAA háskólahokkíinu í 6 ár en á 26 ára þjálfaraferli hefur hann einnig þjálfað félagslið á Ítalíu og Hollandi, þjálfað í QMJHL deildinni og fleiri NCAA háskólalið.

Í viðtali við heimasíðuna segir Jamie:

“Ég er ótrúlega spenntur fyrir þessu tækifæri sem ég fæ á Íslandi. Skautafélag Akureyrar er frábær klúbbur með langri hefð fyrir að ná árangri á öllum sviðum. Að tilheyra Hokkífjölskyldunni á Akureyri og ykkar frábæra stuðningsfólki er eitthvað sem verður mjög sérstakt að fá að vera hluti af. Sigurhefðin er sterk á Akureyri og ég hlakka til að halda áfram á þeirri vegferð sem byggir á þróunarkúltúr og frammistöðu í öllum flokkum.

Við erum með miklar væntingar til tímabilsins svo við verðum að setja kröfu um háan standard. Þetta snýst ekki einfaldlega um sigra eða töp. Þetta snýst um að vera besta útgáfan af sjálfum okkur daginn út og daginn inn.”

Við bjóðum Jamie velkominn í Skautafélag Akureyrar og hlökkum til samstarfsins.