Íslandsmótið í krullu, úrslit 1. umferðar

Mynd: HI (28.12.2013)
Mynd: HI (28.12.2013)


Garpar og Ice Hunt unnu leiki fyrstu umferðar Íslandsmótsins í krullu sem hófst í gær. Garpar hófu titilvörnina með naumum sigri eftir ævintýralegan viðsnúning í síðari hluta leiksins.

Garpar komust yfir í upphafi leiks gegn Víkingum en þá unnu Víkingar fjórar umferðir í röð og komust í 6-2. Í sjöttu umferðinni skoruðu Garpar sex stig og snéru leiknum við, Víkingar jöfnuðu í næstsíðustu umferðinni og eftir spennandi lokaumferð voru það Garpar sem náðu stigi og sigruðu, 9-8.

Ice Hunt skoraði fjögur stig strax í fyrstu umferðinni gegn Freyjum og náði að halda þeirri forystu þrátt fyrir góðar atlögur Freyja. 

Úrslit leikja:
Garpar - Víkingar 9-8
Freyjur - Ice Hunt 4-8

Önnur umferð fer fram mánudagskvöldið 3. febrúar, en þá mætast Mammútar og Garpar annars vegar og Víkingar og Freyjur hins vegar. Ice Hunt situr hjá. 

Úrslit og leikjadagskrá (excel).