Íslandsmótið í krullu 2017

Í kvöld mætast Víkingar og Freyjur á fyrstu braut og Garpar og Ice Hunt á braut 2. Sigri Víkingar í sinni viðureign tryggja þeir sig í efsta sæti úrslitakeppninnar þar sem þeir eru með mun betra skor í skotkeppninni en Garpar sem eiga enn möguleika á að ná Víkingum ef Víkingar tapa í kvöld og Garpar vinna sinn leik. Ice Hunt á enn möguleika á að ná Görpum ef þeir vinna Garpa í kvöld og vinna Freyjur í síðasta leik en þá verða Garpar að tapa sinni viðureign á móti Víkingum í síðasta leik forkeppninnar, en sá leikur gæti orðið hreinn úrslitaleikur um efsta sætið í forkeppninni.