Íslandsmótið 2024

Íslandsmótið í krullu er ávalt leikið eftir eftirfarandi reglum.

Leikreglur íslandsmótsins 2024

1 a) Í keppninni gilda reglur Alþjóða krullusambandsins, WCF, eftir því sem við á

  1. Keppnisfyrirkomulag a) Leikin er tvöföld umferð allra liða. b) Leikjum er raðað fyrirfram á brautir 2,3 og 4. Heimilt er þó að víkja frá þessari uppröðun ef aðrar brautir eru betri til spilunar og verða liðsstjórar beggja liða að samþykkja breytingar. Ákveðið er eftir heflun hvaða brautir verða notaðar hverju sinni. C) Í upphafi snúa menn steini eða varpa hlutkesti um hvort liðið hefur val á síðasta stein eða lit.
  2. Leikir og stig a) Leikir eru sex umferðir og fást tvö stig fyrir hvern unninn leik og eitt stig fyrir jafntefli.
  3. Röðun liða a) Um endanlega röð liða ræður fjöldi vinninga (stiga) úr leikjum. b) Þegar tvö lið eru jöfn að vinningum skulu innbyrðis viðureignir ráða röð liðanna.

Hafi liðin unnið sitt hvorn leikinn ráða heildar umferðir og síðan steinar úrslitum og dugi það ekki ræður sá fjöldi steina sem lið hefur fengið á sig

Það lið sem hefur fengið færri steina á sig verður ofar

  1. c) Þegar þrjú eða fleiri lið eru jöfn að vinningum skal þeim raðað niður sem unnt er á grundvelli vinninga í innbyrðis viðureignum. Þeim liðum sem þá standa enn jöfn skal raðað á grundvelli vinninga í innbyrðis viðureignum þeirra. Dugi það ekki til ræður heildar fjöldi umferða og síðan steina um röðun liða í sæti. Sé enn ekki hægt að fá úrslit ræður fjöldi steina sem lið hefur fengið á sig.
  2. Mæting í leiki og frestun leikja
  3. a) Að jafnaði skulu vera fjórir leikmenn í hvoru liði þegar leikur hefst. Hefja má þó leik með þremur leikmönnum ef gildar ástæður liggja fyrir forföllum. Komi fjórði maður til leiks eftir að leikur er hafinn má hann hefja leik í sinni stöðu þegar næsta umferð eftir að hann mætir til leiks hefst. Leyfilegt er að fá lánaðan liðsmann úr öðru liði til að ná fjórum leikmönnum í lið.
  4. b) Sjái liðsstjóri fram á að geta ekki mætt til leiks með að minnsta kosti þrjá leikmenn í tiltekinn leik skal hann hafa samband við liðsstjóra andstæðinganna eigi síðar en í hádegi á keppnisdegi og biðja um frestun. Við veikindi eða í mjög óvæntum tilvikum er heimilt að hafa samband síðar. Ef óska þarf eftir frestun leiks skulu liðsstjórar hafa virðingu við andstæðinginn og íþróttina að leiðarljósi. Komi liðsstjórar sér saman um frestun skulu þeir gera mótsstjórn viðvart sem finnur nýjan leikdag.
  5. c) Ef ekki hefur verið óskað eftir frestun leiks og lið mætir til leiks með færri en þrjá leikmenn gildir grein R11 í reglum WCF.