Íslandsmótið 2024

Staðan á Íslandsmótinu eftir 7 umferðir
Staðan á Íslandsmótinu eftir 7 umferðir

Garpar unnu sinn sjöunda leik í röð á Íslandsmótinu þegar þeir lögðu Grísi 6 - 4  í annars mjög jöfnum leik. IceHunt sigraði Stuðmenn 10 - 4 og halda enn í vonina um að ná Görpum að stigum en IceHunt er eina liðið sem getur náð Görpum að stigum í mótinu. Riddarar vöknuðu loksins og sigruðu Víkinga 7 - 4.   Garpar eru með fullt hús stiga eða 14 stig. IceHunt eru með 10 stig og þar á eftir koma Víkingar og Grísir með 6 stig.