Íslandsmót í listhlaupi


Helgina 29. nóvember til 1. desember fer Íslandsmótið í listhlaupi fram í Egilshöllinni. Drög að dagskrá mótsins eru komin á vef Skautasambandsins.

Fram kemur í frétt á vef Skautasambandsins að dagskráin gæti tekið einhverjum breytingum, en breytingar verða þó ekki gerðar eftir 28. nóvember.

Ætlunin er að mótið hefjist með aðalæfingu kl. 19.15 á föstudagskvöldi, en sjálf keppnin hefjist kl. 8 á laugardagsmorgninum og ljúki um hádegisbil á sunnudegi.

Dagskrána má sjá í frétt á vef Skautasambandsins.