Íslandsmót hjá 4. flokki - dagskrá


Annar hluti Íslandsmótsins í 4. flokkí hokkí fer fram í Skautahöllinni á Akureyri um helgina. Dagskrá mótsins er klár.

Fyrsti leikur hefst kl. 7.50 á laugardagsmorguninn. Gert verður hlé á mótinu og svellið opið almenningi kl. 13-15 - vekjum athygli á að almenningstíminn er styttri en venjulega. Áfram verður spilað frá kl. 15.10 og fram á kvöld. Keppni hefst svo aftur kl. 7.50 á sunnudagsmorguninn, en mótinu lýkur með verðlaunaafhendingu kl. 13 á sunnudag.

Dagskrá og reglur (pdf).