Íslandsmót 2017

Fyrirhugað er að íslandsmót í krullu hefjist mánudaginn 6. mars Kl.19:00. í skautahöllinni á Akureyri Tilkynning liða berist á netfangið hallval@outlook.com fyrir laugardaginn 4. mars kl 12:00, þar sem fram kemur nafn liðs og liðsmanna minnst fjórir og mest fimm leikmenn. Reiknað er með tvöfaldri umferð og úrslitakeppni á milli tveggja efstu liða eftir það. Leikið verður á mánudagskvöldum kl 19:00. Leiknar verða sex umferðir en sjö umferðir ef liðin verða jöfn að loknum sex umferðum. Nánari reglur og fyrirkomulag verða kynntar áður en keppni hefst.
Krullunefnd ÍSÍ