Íslandsmót 2015

Undankeppni Íslandsmótsins 2015 hefst n.k. mánudag.  Eins og er eru 4 lið skráð til þátttöku og dregið verður um leikjaskipan á mánudagskvöld.  Leikið verður eftir reglum um Íslandsmót sem sjá má hér á valmyndinni til vinstri (1.-5. liður).  Í stuttu máli: Allir leika við alla, 8 umferðir eða 9 ef jafnt er eftir 8 umferðir.  Áður en leikur hefst skal taka vítaskot. Þrjú efstu liðin vinna sér rétt til að taka þátt í úrslitakeppni sem reiknað  er með að verði haldin 27.-28. mars.  Úrslitakeppnin og niðurröðun leikja verður nánar auglýst síðar.