Gimli mótið 2016

Frestuðum leik Garpa og Rest lauk með 6-1 sigri Restarinnar.  Þegar tvær umferðir eru eftir stendur Rest best að vígi og nægir einn sigur eða jafntefli til að tryggja sér titilinn.  Eins er möguleiki fyrir Garpa að hirða dolluna ef Restin tapar báðum sínum leikjum og Garparnir sigra báða sína leiki.  Þá verða Rest og Garpar jöfn að stigum og jöfn í innbyrðisviðureignum þannig að þá fara endar að telja.  Restin hefur 6 fleiri enda eins og staðan er í dag.  Víkingar og Ice Hunt ekki náð hinum liðunum.  

Næsta mánudag, 8. feb. leika Víkingar við Garpa og Ice Hunt leika við Rest.

Stöðu, úrslit og fl. má sjá hér.