Frostmót listhlaupadeildar SA um helgina

Frá Frostmótinu 2010.
Frá Frostmótinu 2010.


Á laugardag og sunnudag heldur listhlaupadeild SA Frostmótið fyrir keppendur í C-flokkum. Dagskrá Frostmótsins liggur fyrir, sem og keppnisröð í öllum flokkum.

Alls eru 86 keppendur skráðir til leiks á mótinu, þar af 18 frá Skautafélagi Akureyrar. Keppni hefst kl. 8 bæði á laugardags- og sunnudagsmorgni.

Dagskrá 
Keppnisröð

Vakin er athygli á því að vegna mótsins og af öðrum ástæðum seinkar almenningstíma á laugardag. Opið verður kl. 15-18, en frítt verður fyrir alla inn á svellið ásamt skautum, á meðan birgðir endast. Það er Vodafone RED sem býður í skautapartí á laugardaginn.