Fréttabréf foreldrafélagsins vegna Brynjumóts

Hér er oðrsending til foreldra barna  5., 6., og 7. Flokks og einnig byrjenda.................................

Foreldrafélag SA 

 

Fréttabréf  

 

Kæru iðkendur og foreldrar  

 

Nú styttist í Brynjumótið, en það verður helgina 11.-12. nóvember nk.  Þegar svona mót er haldið þarf að huga að ýmsu og þá þurfum við hjálp ykkar foreldranna.  Venjan er að bjóða aðstandendum þeirra sem koma að sunnan kaffi og meðlæti í fundarherberginu uppi.  Foreldrar hafa hjálpað til og bakað og verður sama fyrirkomulag þetta árið.  Þegar okkar börn keppa fyrir sunnan hefur okkur verið boðið upp á það sama.

            Við þurfum einnig að skipta okkur á dagana til að fylgjast með og aðstoða keppendur okkar.  Gott væri að þið hefðuð samband við okkur sem fyrst til að við getum séð hversu mikinn mannskap við höfum.  Við skiptum okkar á vaktir yfir daginn, hver vakt er ca. 2 klst. og þrír foreldrar saman.

            Liðstjóri/ar fylgir hverju liði og sér til þess að krakkarnir séu tilbúnir á svellið þegar þeir eru að keppa, en best er ef foreldrar hjálpa sínum börnum.  Ath. að mikilvægt er að mæta ½ tíma fyrir leik. 

 

 

 

 

ATH!!! Nauðsynlegt er að hafa hjálm með grind og hálshlíf 

Þið sem eigið búnað sem ekki er lengur í notkun og viljið selja, munið skiptimarkaiðnn á sunnudaginn og eins skiptimarkaðinn á heimasíðunni okkar. Hægt er að senda uppl. um búnað til sölu, eða óska eftir að kaupa á netfangið galli@sasport.is

 

 

 

 

Með von um góða þátttöku,

f.h. foreldrafélagsins, Sólveig Hulda Valg.

solveighulda@plusnet.is eða s: 660-4886

Skilaboð frá stjórn  

 

 

Alltof fáir foreldrar hafa skráð krakkana sína í félagið en nú verðið þið kæru foreldrar/forráðamenn að taka ykkur saman í andlitinu og skrá krakkana!!!  Það gildir nefnilega að þeir iðkendur sem ekki eru skráðir fá ekki að taka þátt í mótum, né að vera á æfingum.  Hægt er að skrá á heimasíðunni sasport.is eða hjá Ollý formanni á netfangið ollybj@simnet.is eða í síma 848-7577.

                                                                                                Kv. Stjórnin