Einstaklingsmótinu lokið

Einstaklingsmótinu lauk í kvöld, úrslitin réðust á steinum. Kristján Bjarnason sigurvegari.

Mikil spenna var á milli manna um það hverjir drægjust saman í síðustu umferð þar sem skipti máli að lenda ekki í sama liði og keppinautur með svipaðan umferðafjölda. Fyrir síðustu umferðina var Kristján Bjarnason efstur með 11 umferðir og Svana og Davíð með 10 umferðir, þá kom Haraldur með 9 umferðir. Kristján Bjarna dregst á móti liði sem Svana var í og Davíð og Haraldur drógust saman í lið sem þýddi að Davíð yrði alltaf ofar en Haraldur. Leikar enduðu þannig að lið Svönu náði tveimur umferðum og endaði hún því með 12 umferðir samtals. Kristján vann eina umferð og endaði einnig með samtals 12 umferðir. Lið Davíðs og Haraldar náði tveimur umferðum og endaði því Davíð einnig með 12 umferðir og Haraldur með 11 umferðir. Steinar ráða því úrslitum í mótinu eins og taflan hér að neðan sýnir. Heildarúrslit hér

 umf.steinar
Kristján B.1225
Davíð 1223
Svana 1219