Einstaklingsmót í desember

Í desember brjótum við upp liðin til gamans og spilum einstaklingskeppni.

Dagana 7,9,14 og 16 desember verður einstaklingsmót í krullu. Þeir sem mæta draga sig í lið og síðan eru spilaður 3 umferða leikur. Þá verður aftur dregið í lið og aftur spilaðar þrjár umferðir. Safna menn umferðurm og steinum sem síðan ráð úrslitum. Efstu einstaklingar eftir hverja umferð dragast ekki saman í lið. Nánari útfærsla síðar. Davíð og Óli Hreins sjá um þetta mót og ef einhverjar spurningar vakna þá má hafa samband við þá. Tekið skal fram að ekki verður krulla miðvikudagskvöldið 2. des.