Íslandsmótið 2024

Úrslit áttundu umferðar og staðan á Íslandsmótinu.
Úrslit áttundu umferðar og staðan á Íslandsmótinu.

Áttunda umferð Íslandsmótsins var leikin á mánudagskvöld. 

Garpar halda sigurgöngu sinni áfram en þeir sigruðu Víkinga 6 - 4. Ice Hunt eltir Garpa eins og skugginn en þeir sigruðu Grísi 7 - 6 og Riddarar unnu sinn annan leik í röð með sigri á Stuðmönnum  9 - 3.  Garpar eru með 16 stig og Ice Hunt fylgir á eftir með 12 stig. Næstu lið eru Víkingar, Grísir og Riddarar öll með 6 stig en víkingar eru með fleiri enda Grísir og Riddarar.