BRYNJUMÓTI LOKIÐ

Nú er Brynjumótinu lokið og ég held að vel hafi tekist til með flesta hluti og að allir hafi skemmt sér hið besta. Við í SA viljum þakka Birninum og SR fyrir þátttökuna og skemmtilega helgi og óskum þeim góðrar ferðar heim. Hér fylgja svo nokkrar myndir í boði Ása ljósmyndara, svona til upprifjunar og ánægju.Videó var tekið af öllum leikjum mótsins og eftir það liggur mikið efni. Ekki hefur alveg verið ákveðið hvernig úr því verður unnið, en ef einhverjir hafa áhuga á að fá eitthvað úr þessu efni þá er best að senda beiðni eða fyrirspurn á reynir@sasport.is og við sjáum hvað hægt er að gera.