Bingó Listhlaupadeildar


Fimmtudaginn 7. nóvember stendur Listhlaupadeild SA fyrir bingói í sal Síðuskóla. Bingóið hefst kl. 19.30. 

Spjaldið kostar 500 krónur, en lækkar í 300 krónur í hléinu. Athugið að ekki verður posi á staðnum. Veitingasala í hléinu. Glæsilegir vinningar, allir velkomnir.

Við vekjum athygli á að stofnaður hefur verið viðburður á Facebook og hvetjum við SA-fólk til að bjóða sem flestum til að upplýsingar um bingóið berist sem víða. Stuttur tími til stefnu, en auðvelt að láta fréttina berast eins og eld í sinu um allan bæinn ef við tökum höndum saman.