Úrslitaleikur Magga Finns Bikarmóts Krulludeildar


Í kvöld, miðvikudagskvöldið 18. desember fer fram úrslitaleikur Bikarmóts Krulludeildar.

Það voru Freyjur og Mammútar sem sigruðu andstæðinga sína í undanúrslitum og því mætast þessi lið í úrslitaleiknum í kvöld. Leikurinn gæti hugsanlega hafist um kl. 21, en það fer eftir því hvenær jólasýning Listhlaupadeildar endar og hve fljótt gengur að ganga frá eftir hana.

Eftir bikarúrslitaleikinn fer krullufólk í jólafrí fram til laugardagsins 28. desember, en þá verður hið árlega Áramótamót Krulludeildar. Nánar um það síðar.