Bikarmótið: Fálkar og Mammútar áfram

Fálkar og Mammútar unnu leiki sína í fyrstu umferð Bikarmótsins.

Fyrsta umferð Bikarmóts Krulludeildar fór fram í kvöld og voru leiknir tveir leikir. Fálkar sigruðu Fífurnar nokkuð örugglega, 9-2, og Mammútar unnu Víkinga í jöfnum og spennandi leik þar sem úrslitin réðust í aukaumferð, lokatölur 4-3. Fálkar og Mammútar eru því komnir í undanúrslit ásamt Görpum og Riddurum sem sátu hjá í fyrstu umferðinni. Dregið var til undanúrslita eftir leikina í kvöld.

Leikir í undanúrslitum, miðvikudagskvöldið 8. desember:

Braut 4: Fálkar - Riddarar
Braut 5: Mammútar - Garpar

Ef nægilega margir leikmenn úr öðrum liðum mæta á miðvikudagskvöldið verður einnig leikið í Aðventumótinu.