Bikarmót Krulludeildar: Sjö lið skráð til leiks

Dregið verður til fyrstu umferðar við upphaf krullutímans í kvöld.

Eftirtalin lið hafa skráð sig til keppni í Bikarmótinu: Fálkar, Fífurnar, Ís-lendingar, Rennusteinarnir, Svartagengið, Víkingar og Útlagar

Þar sem sjö lið hafa skráð sig til leiks mun eitt lið sitja yfir í fyrstu umferðinni og fara beint í undanúrslit, ásamt sigurvegurum í leikjunum þremur sem leiknir verða í kvöld. Öll liðin sjö þurfa að mæta í kvöld í dráttinn en aðeins sex þeirra spila.