Bikarmót Krulludeildar hefst 30. nóvember

Skráningarfrestur í mótið er til hádegis miðvikudaginn 30. nóvember. Miðað er við að spila mótið næstu þrjá miðvikudaga.

Bikarmótið verður leikið með útsláttarfyrirkomulagi eins og venjulega, en lengd mótsins fer að sjálfsögðu eftir fjölda liða. Ef átta eða færri lið taka þátt endar það með úrslitaleik miðvikudagskvöldið 14. desember.

Tekið er við skráningum í mótið fram að hádegi miðvikudaginn 30. nóvember og tilkynnt þá um daginn hvaða lið eiga að . Senda má skráningar í netfangið haring@simnet.is eða hringja í 824 2778.

Áætlað er að leikdagar verði þrír næstu miðvikudagar, þ.e. 30. nóvember, 7. desember og 14. desember. Þurfi fleiri leikdaga vegna fjölda liða verður það auglýst þegar þar að kemur.