Aldís Kara skautakona ársins hjá listskautadeild

Aldís Kara skautakona listskautadeildar 2022
Aldís Kara skautakona listskautadeildar 2022

Listskautadeild Skautafélags Akureyrar hefur valið Aldísi Köru Bergsdóttur sem skautakonu ársins 2022. Aldís Kara var heiðruð á sunnudag á jólasýningu listskautadeildar SA en hún var einnig valin skautakona ársins hjá Skautasambandi Íslands.

Skautaárið 2022 byrjaði með látum hjá Aldísi en í janúar 2022 keppti Aldís Kara fyrst íslenskra skautara á Evrópumeistaramótinu sem haldið var í Tallinn, Eistlandi, og hlaut 42,23 stig  sem skilaði henni 34. sæti. Eftir þátttöku sína á Evrópumeistaramótinu keppti hún á Norðurlandamótinu í Hørsholm, Danmörku en þar hlaut hún alls 119,75 stig. En það eru hæstu stig sem íslenskur skautari hefur fengið á Norðurlandamóti. Aldís Kara lauk svo tímabílinu með þátttöku sinni á RIG með alls 117,31 stig. Síðasta mót Aldísar var svo Haustmót 2022 sem haldið var í Egilshöll þar sem hún fékk 128,14 stig.

Afrek Aldísar Köru eru ekki síður mikilvæg fyrir alla íþróttina en hún er fyrsti íslenski skautarinn til að hljóta þátttökurétt á Heimsmeistaramóti Unglinga sem  og á Evrópumeistaramóti fullorðinna í 27 ára sögu Skautasambandsins Íslands. Með þessum afrekum braut Aldís Kara blað í skautasögu Íslands.

Sem afreksskautari í Senior flokki hefur Aldís Kara sífellt verið að bæta sinn persónulega árangur en Íslandsmet hennar eru 136,14 heildarstig sem hún náði á Íslandsmóti 2021 sem eru hæstu stig sem íslenskur skautari hefur fengið hérlendis. Besta árangri sínum á alþjóðlegu móti náði hún á Finlandia Trophy 2021 þar sem hún hlaut 122,11 heildarstig.

Allan sinn skautaferil hefur Aldís Kara verið gríðarlega mikilvæg fyrirmynd fyrir sér yngri skautara þar sem hún hefur ávallt unnið að sínum markmiðum af mikilli elju. Aldís Kara tilkynnti nýverið að hún hefði lagt skautana á hilluna eftir 15 ára farsælan skautaferil. Hún æfði með Skautafélagi Akureyrar lengst af undir leiðsögn Iveta Reitmayerova en síðar Darja Zajcenko. Er ekki annað hægt að segja en að hún geti gengið stolt frá borði.

 

(Aldís Kara skautakona listhlaupadeildar 2022 mynd: Unnur Anna.)