4.flokkur Íslandsmót 2.hluti á Akureyri um helgina

Þessa helgi er heilmikið um að vera hjá iðkendum hokkídeildar SA. 

2.hluti Íslandsmótsins í 4.flokki fer fram hér í Skautahöllinni á Akureyri en SA leiðir í keppninni með 12 stig en SR er neð 5 og Björninn 1, dagskrá mótsins má sjá hér.

Svo er leikur í meistaraflokki kvenna þar sem Ásynjur spila við kvennalið SR í Laugardalnum á laugardaginn kl. 18,30 og í 2.flokki karla eigast svo við strax að þeim leik loknum á sama stað SR og SA. Stöðuna í 2.flokki má sjá hér.