3. leikur í úrslitakeppni í dag kl. 19:00

Ljósmynd:  Sigurgeir Haraldsson
Ljósmynd: Sigurgeir Haraldsson
Í kvöld mætast SA og Björninn í þriðja leik úrslitakeppninnar um Íslandsmeistaratitilinn.  Staðan í einvíginu er 2 - 0 fyrir stelpunum okkar og í kvöld verður allt lagt í sölurnar því með sigri geta þær tryggt sér titilinn.  SA unnu nokkuð öruggan sigur í fyrsta leik og fóru vel af stað í þeim næsta, en Björninn kom til baka og hleypti spennu í leikinn.  Stelpurnar þurfa að eiga góðan leik í kvöld til þess að klára þetta og þær þurfa á stuðningi áhorfenda.

Leikurinn verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni N4 og mun þetta vera í fyrsta skiptið sem sýnt er beint frá íshokkí kvenna hér á landi.  Virkilega skemmtileg tímamót og á sjónvarpsstöðin mikinn heiður skilinn fyrir þetta framtak. 

Látum öll sjá okkur í kvöld og látum einnig heyra hátt í okkur - klæðumst rauðu og hrópum áfram SA!