Aðalfundur Hokkídeildar

Aðalfundur Hokkídeildar Skautafélags Akureyrar verður haldinn fimmtudaginn 17. maí kl. 20,00 í fundarherbergi Skautahallarinnar.


LÖG SKAUTAFÉLAGS AKUREYRAR

13. grein

Fyrir 1. maí ár hvert skal hver deild halda aðalfund sinn.  Atkvæðisrétt á þeim fundi hafa allir félagar deildarinnar, 16 ára og eldri, enda hafi þeir greitt lögboðin gjöld.

Til aðalfundarins skal boða með viku fyrirvara, í dagblöðum, dagskrám og/eða heimasíðu félagsins og er hann lögmætur sé löglega til hans boðað.

Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir.

1. Kosinn fundarstjóri og fundarritari

2. Stjórn deildarinnar gefur skýrslu um starfsemi deildarinnar á liðnu starfsári.

3. Stjórn deildarinnar gefur skýrslu um fjárhag deildarinnar og leggur fram endurskoðaða reikninga

4. Kosin deildarstjórn og tveir varamenn

            a) Kosinn formaður

            b) Kosinn varaformaður

            c) Kosinn ritari

            d) Kosinn gjaldkeri

            e) Kosinn meðstjórnandi

            f) Kosnir tveir varamenn

           

5. Önnur mál er fram kunna að koma

Á fundinum ræður meirihluti atkvæða úrslitum allra mála, þó með þeim undantekningum sem gerðar eru í lögum þessum.