Flýtileiðir

Fréttir

09.03.2026

minningarorð um Sólveigu Huldu

Í dag kveðjum við kæran félaga og eina af okkar bestu, Sólveigu Huldu Valgeirsdóttur. Sólveig Hulda hafði stórt SA-hjarta, eins og við segjum gjarnan um þá sem eru alltaf tilbúnir að leggja félaginu okkar lið. Í rúm tuttugu ár var hún virkur og ómetanlegur þátttakandi í starfi hokkídeildar Skautafélags Akureyrar.
30.01.2026

Íþróttafólk Akureyrar heiðrað á íþróttahátíð Akureyrar í gærkvöld

Íþróttafólk og íþróttafélög Akureyrar var heiðrað í gær á íþróttahátið Akureyrar sem fram fór í Menningarhúsinu Hofi. Íshokkíkarlinn Unnar Hafberg Rúnarsson var í 4. sæti yfir íþróttakarla Akureyrar. Hlauparinn Baldvin Þór Magnússon frá UFA er íþróttakarl Akureyrar 2025 og knattspyrnukonan Sandra María Jessen frá Þór/KA er íþróttakona Akureyrar 2025.
13.01.2026

Sædís Heba Guðmundssdóttir og Unnar Hafberg Rúnarsson hafa verið valin íþróttafólk SA fyrir árið 2025

Listskautakonan Sædís Heba Guðmundssdóttir og íshokkímaðurinn Unnar Hafberg Rúnarsson hafa verið valin íþróttafólk SA fyrir árið 2025 og voru heiðruð og veitt viðurkenningar af Skautafélagi Akureyrar í gærkvöld. Bæði tvö hafa nú þegar verið valin íþróttafólk sinnar deildar innan félagsins en eru einnig skautakona og íshokkíkarl ársins hjá sínum sérsamböndum, Skautasambandi Íslands og Íshokkísambandi Íslands. Bæði tvö eru tilnefnd af Skautafélagi Akureyrar til Íþróttafólks Akureyrar fyrir árið 2025 en valið verður kunngjört á íþróttahátið Akureyrar 29. janúar næstkomandi í menningarhúsinu Hofi.
08.12.2025

Jólasýningin á sunnudag

Jólasýning Listskautadeildar Skautafélags Akureyrar - Þegar Trölli stal jólunum fer fram sunnudaginn 14.des nk. kl: 17:30 í Skautahöllinni. Foreldrafélagið verður með veitingasölu í hléinu og pekkjakastið á sínum stað. Láttu ekki þessa frábæru sýningu fram hjá þér fara, sjón er sögu ríkari. Miðasala á staðnum.

Einhver auglýsing

myndbrot

SA TV

Á SA TV youtube síðunni eru flest öll mót, leikir og viðburðir sem fara fram í Skautahöllinni á Akureyri sýnd í beinni útsendingu. Þar má finna allt efni einnig aftur í tímann.

SA tv

Lesa meira