Íslenska U18 landslið kvenna í íshokkí tekur þátt í 4 Nations móti í Poznan í Póllandi nú yfir helgina. Mótið er alþjóðlegt æfingamót en auk Íslands eru þáttökuþjóðir Spánn, Bretland og Póland og er þetta í þriðja sinn sem liðið tekur þátt í þessu sterka móti. Ísland mætir heimaliðinu Póllandi í dag en leikurinn hefst kl. 15.00 á íslenskum tíma en öllum leikjunum verður streymt í gegnum facebook síðu Poznan hockey. Við eigum 13 fulltrúa í liðinu að þessu sinni sem við fylgjum stolt með og sendum hlýja strauma til liðsins alla leið til Póllands. Áfram Ísland!
Fulltrúar SA í landsliðinu:
- Aníta Ósk Sævarsdóttir
- Aðalheiður Anna Ragnarsdóttir
- Sveindís Marý Sveinsdóttir
- María Guðrún Eiríksdóttir
- Amanda Ýr Bjarnadóttir
- Kolbrún Björnsdóttir
- Inga Rakel Aradóttir
- Ragnheiður Alís Ragnarsdóttir
- Arna Sigríður Gunnlaugsdóttir
- Eyrun Arna Garðarsdóttir
- Magdalena Sulova
- Lara Mist Jóhannsdóttir
- Heiðrún Helga Rúnarsdóttir
Dagskrá mótsins
Ísland – Pólland á föstudag kl. 15:00
Ísland – Bretland á laugardag kl. 12:00
Ísland - Spánn á sunnudag kl. 9:00
Athugasemdir