    <language>is</language>
Fréttir | Skautafélag Akureyrar
Vetrarstarfið hafið hjá Skautafélagi Akureyrar
Æfingar hjá Skautafélagi Akureyrar eru nú farnar á fullt samkvæmt æfingatöflu og starfsemi allra deilda að hefjast að nýju eftir sumarið.
Byrjendaæfingar á listskautum og hokkí hefjast í þessari viku og eru allir nýir iðkendur hjartanlega velkomnir.
Listhlaup
Byrjendaæfingar hefjast mánudaginn 24. ágúst en æfingar eru á mánudögum og miðvikudögum kl. 16:00–17:30.
Upplýsingar og skráning: thjalfari@listhlaup.is
Íshokkí
Byrjendaæfingar hefjast fimmtudaginn 27. ágúst og verða á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:00–17:45.
Upplýsingar og skráning: hockeysmiley@gmail.com]]></description>
100 manns sprettu úr spori frá Skautahöllinni í gær
Það voru 100 manns sem komu saman við skautahöllina í gær og gengu eða hlupu til stuðnings hlaupurum Reykjavíkurmaraþonsins til minningar og áheita í málstað okkar ástkæru Sólveigar Huldu og barnabarns hennar litlu Sólveigar Huldu.
Það var mögnuð appelsínugul fylking úr samfélaginu okkar sem spretti af stað frá höllinni í gærmorgun, mátti þar sjá sjálfboðaliða, dómara, leikmenn, stjórnarfólk, fjölskyldu, vini og velunnara Sólveigar og fjölskyldu.]]></description>
Göngum í minningu Sollu
Við erum svo lánsöm að eiga sterkt og gott samfélag í Skautafélaginu okkar, fólk sem skautar, þjálfar, sýnir stuðning í verki, hlúir að mannauðnum og starfinu bæði hið ytra sem innra og svo fólk sem fær frábærar hugmyndir.
Á laugardaginn fer Reykjavíkurmaraþon fram í borginni og eru nokkur úr okkar hópi sem ætla hlaupa þar í minningu okkar ástkæru Sólveigar Huldu og nöfnu hennar litlu Sólveigar Huldu.
Mörg okkar hafa stutt málefnið en eiga ekki heimangengt til Reykjavíkur eða treysta sér ekki til að hlaupa en vildu gjarnan sýna samhug í verki.
Því var það einkar ánægjuleg og góð hugmynd sem barst til okkar, að koma saman við skautahöllina og ganga, skokka eða hlaupa; upp Naustaveginn, að sjúkrahúsinu, niður Spítalaveginn og suður Aðalstrætið aftur að höllinni.]]></description>
Nýtt tímabil handan við hornið.
Þó flestir iðkendur séu nú að taka þátt í æfingabúðum hjá okkur og nýtt hokkí tímabil handan við hornið er ekki úr vegi að rifja upp lokin á því liðna þar sem fréttaskrif frá lokahófi deildarinnar fórust fyrir vor !
þegar hefðbundnum æfingum lauk í vor héldum við að venju vormót í maímánuði fyrir U14 og yngri, þátttaka var góð, spilað í 4 deildum alveg niður í krílahóp. Í lok mótsins hélt Foreldrafélagið lokahóf fyrir þátttakendur, allir fengu verðlaun og viðurkenningu eftir veturinn auk þess sem viðurkenningar voru veittar fyrir góðan árangur í mótinu.
Lokahóf fyrir eldri flokka var hins vegar haldið á Vitanum þar sem gestir skemmtu sér undir veislustjórn Arndísar og Sollu Smára, nutu ljúffengra veitinga, rifjuðu upp hápunkta úr leikjum vetrarins hjá hverjum flokki. Formaður deildarinnar hélt stutta tölu, verðlaun voru veitt fyrir frammistöðu auk þess sem meistara flokkarnir færðu sínu dygga aðstoðar fólk þakklætisvott fyrir veturinn. Það er alltaf gott að koma saman í lok tímabils, taka veturinn saman, treysta böndin og finna SA hjartað slá með öllum hinum.]]></description>
Við þökkum komuna í Leikjaskóla SA
Skautafélag Akureyrar þakkar öllum börnunum og fjölskyldum þeirra fyrir komuna í leikjaskólann í júní. Báðar vikurnar seldust upp og það var frábært að sjá svona marga hressa krakka fylla Skautahöllina. Dagarnir einkenndust af leik, hreyfingu og alls konar skemmtilegum verkefnum. Það var mikið hlegið og umfram allt haft gaman saman.
Við hlökkum nú þegar til næsta leikjaskóla og óskum öllum gleðilegs sumars!]]></description>
Íshokkídeild Skautafélags Akureyrar semur við Emil Alengård
Íshokkídeild Skautafélags Akureyrar hefur ráðið Emil Alengård sem yfirþjálfara meistaraflokka karla og kvenna ásamt U18 flokki félagsins fyrir tímabilið 2026–2027.]]></description>
SA hlýtur Kånken Youth Retention Award 2026 – stærsta viðurkenning sem barnastarf félagsins hefur hlotið
Skautafélag Akureyrar hlaut í gær eina virtustu viðurkenningu sem veitt er fyrir barnastarf og þátttöku í íshokkí þegar félagið var útnefnt handhafi Kånken Youth Retention Award 2026 á verðlaunahátíð samtaka evrópskra íshokkífélaga (EHC) í Prag.
Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn European Hockey Awards þar sem saman komu fulltrúar fremstu íshokkífélaga Evrópu. Fyrir hönd SA tók íþróttastjóri félagsins, Sarah Smiley, við verðlaununum ásamt eiginmanni sínum Ingvari Jónssyni.]]></description>
Sunna Björgvinsdóttir komin heim í SA
SA hefur fengið öflugan liðsstyrk fyrir komandi tímabil en landsliðsfyrirliði Íslands, Sunna Björgvinsdóttir, skrifaði undir samning við félagið fyrr í dag. Með endurkomu Sunnu fær SA ekki aðeins einn besta leikmann landsins heldur einnig sterkan leiðtoga og mikilvæga fyrirmynd.]]></description>
Nýjar stjórnir teknar til starfa hjá Skautafélagi Akureyrar
Aðalfundum Skautafélags Akureyrar og deilda félagsins er nú lokið og hafa nýjar stjórnir tekið til starfa fyrir komandi starfsár. Fundirnir endurspegluðu áframhaldandi uppbyggingu og öflugt starf innan félagsins þar sem iðkendum hefur fjölgað, árangur verið góður og mikil áhersla lögð á jákvæða menningu og þróun starfseminnar. Fram undan eru spennandi verkefni, ekki síst undirbúningur að 90 ára afmæli félagsins árið 2027.]]></description>
Skauta- og íshokkí leikjanámskeið SA í júní
Í júní býður SA upp á skauta- og íshokkí leikjanámskeið fyrir öll börn fædd 2015–2019. Námskeiðin fer fram dagana 15.–19. og 22.-26. júní.]]></description>
Artis Tannlæknastofa styrkir Vormót SA með nýjum vestum
Vormótið hjá hokkídeild SA stendur nú sem hæst en mótið er innanhússmót sem haldið er ár hvert í maí með það að markmiði að skapa skemmtilega og jákvæða keppni meðal iðkenda félagsins.]]></description>
Úthlutað úr minningarsjóði Evu Bjargar Halldórsdóttur
Þann 26.apríl síðastliðin var úthlutað styrkjum úr Minningarsjóði Evu Bjargar Halldórsdóttur, fyrrum skautara og þjálfara hjá LSA, í annað sinn.
Í ár voru þær Ylfa Rún Guðmundsdóttir og Petchohomboo Jonsson valdar úr hópi iðkenda fyrir framfarir og iðni á liðnu tímabili.
Við óskum stelpunum innilega til hamingju og vonum að styrkirnir verði þeim að gagni í íþróttinni ]]></description>
Ný stjórn kosin á aðalfundi íshokkídeildar
Aðalfundur íshokkídeildar Skautafélags Akureyrar fór fram í félagssal Skautahallarinnar á mánudagskvöld. Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf, þar á meðal skýrsla stjórnar um starfsemi liðins vetrar, ársreikningar deildarinnar og kosning nýrrar stjórnar.]]></description>
Nýr Zamboni íshefill tekinn í notkun í Skautahöllinni
Nýr Zamboni íshefill var tekinn í notkun í Skautahöllinni í dag og leysir þar með af hólmi þann gamla sem hefur þjónustað félagið dyggilega í 23 ár. Nýja vélin er sérsmíðuð fyrir félagið í Zamboni verksmiðjunni í Bandaríkjunum og flutt til landsins í gegnum Zamboni Europe í Svíþjóð. Tæknimaður frá fyrirtækinu fylgdi vélinni til landsins, sá um gangsetningu hennar og tryggði að allt væri eins og það ætti að vera áður en hún fór í sína fyrstu ferð á svellinu. Svellagerðarmenn félagsins fengu jafnframt kennslu á vélina og nýjan búnað hennar.]]></description>
Aðalfundur Skautafélags Akureyrar 14. maí
Boðað er til aðalfundar Skautafélags Akureyrar fimmtudaginn 14. maí kl. 18.00 í félagssal Skautahallarinnar. Hefðbundin aðalfundarstörf skv. lögum félagsins.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta en allir skuldlausir félagsmenn 16 ára og eldri hafa atkvæðisrétt, málfrelsi, tillögurétt og kjörgengi til stjórnarstarfa á aðalfundi félagsins.]]></description>
Aðalfundir íshokkídeildar, listskautadeildar og krulludeildar dagana 11.-13. maí
Skautafélaga Akureyrar boðar til aðalfunda allra deilda félagsins dagana 11.-13. maí í félagssal Skautahallarinnar.
Tímasetningar aðalfunda deilda:
Íshokkídeild mánudaginn 11. maí kl. 18:00
Krulludeild þriðjudaginn 12. maí kl. 18:00
Listskautadeild miðvikudaginn 13. maí kl. 18:00]]></description>
Minningarorð um Birgi Val Ágústsson
Í dag var borinn til grafar Birgir Valur Ágústsson, heiðursfélagi í Skautafélagi Akureyrar. Biggi Ágústar var alla tíð mikill skautafélagsmaður og sérstakur áhugamaður um íshokkí. Hann var formaður félagsins á árunum 1970 – 1975 og lagði sitt lóð á vogarskálarnar við rekstur félagsins og uppbyggingu þess. Hann kom einnig að uppbyggingu skautasvæðisins að Krókeyri og tók virkan þátt í undirbúningi fyrir vélfrysta skautasvellið sem vígt var í janúar 1988, sem var stórt framfaraskref fyrir félagið. Sem athafnamaður í bænum studdi hann ásamt bræðrum sínum félagið af heilum hug, og þegar keppt var í Reykjavík fékk liðið oftar en ekki lánaða bíla til að komast á leikstað svo eitthvað sé nefnt. Einnig var fluttur inn íshokkíbúnaður og kylfur þegar slíkt var erfitt að komast yfir hér á landi og síðar sett upp verslun með skautabúnaði. Biggi keppti lengi í íshokkí með félaginu og hélt áfram að æfa langt fram eftir aldri, allt fram á sjötugsaldur. Á ísnum var hann kappsamur og það var sérstaklega ánægjulegt að spila með honum síðustu árin. Við minnumst hans á fjær bláu, kallandi á pökkinn með heldur frjálslega túlkun á rangstöðureglum. Enn þann dag í dag er talað um „að taka Bigga Ágústar á þetta“ þegar menn skila sér ekki í vörnina og bíða frammi. Í Bigga áttum við hauk í horni sem fylgdist ætíð vel með gengi félagsins og þegar maður rakst á hann á förnum vegi var íshokkíið alltaf til umræðu. Biggi var gerður að heiðursfélaga Skautafélags Akureyrar á 60 ára afmæli félagsins árið 1997. Að lokum vil ég fyrir hönd Skautafélags Akureyrar þakka fyrir ómetanlegt framlag til félagsins sem og félagsskapinn í ísnum, og sendi eftirlifandi eiginkonu hans, Ingunni Þóru Baldvinsdóttur, börnum þeirra, fjölskyldu og vinum, innilegar samúðarkveðjur. ]]></description>
IceCup 2026 í Skautahöllinni
Alþjóðlega krullumótið IceCup hófst í dag og er haldið í Skautahöllinni í 21. skipti. Yfir 80 keppendur í 20 liðum frá 13 löndum (Þýskaland, Ungverjaland, Tékkland, Sviss, Slóvakía, Skotland, Sealand, Kanada, Holland, Fillippseyjar, England, Bandaríkin og Ísland) taka þátt í mótinu í ár en það er Krulludeild Skautafélags Akureyrar sem á veg og vanda af þessu skemmtilega móti sem laðar að mun fleiri lið en fá þáttökurétt. Opnunarhátið mótsins fór fram í gærkvöld í húsi Flugbjörgunarsveitinnar og hófst keppnin svo í morgun og stendur yfir frá morgni til kvölds næstu daga og klárast svo með úrslitaleikjum á laugardagskvöld og lokahófi. Við hvetjum fólk til þess að koma líta á keppnina en fyrir utan hörku spennandi keppni og litríka búninga liðanna þá er seld kjötsúpa og aðrar veitingar á mjög svo hóflegu verði.]]></description>
SA liðin unnu Íslandsmeistaratitlana í U14
Skautafélag Akureyrar tryggði sér báða Íslandsmeistaratitlana U14 liða um helgina á síðasta helgarmóti tímabilsins sem fór fram á Akureyri. AAA liðið, SA Víkingar, unnu alla sína leiki um helgina og vann 11 af 12 leikjum sínum á tímabilinu. Spennan var meiri í AA liðum en þar réðust úrslitin í síðustu leikjunum en SA Ynjur/Jötnar unnua alla sína leiki um helgina og tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn.
Við óskum SA liðunum innilega til hamingju með frábært tímabil og Íslandsmeistaratitlana.]]></description>
SA Jötnar Íslandsmeistarar í U18
SA Jötnar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í U18 um helgina með 10-2 sigri á Fjölni og 6-4 sigri á SR. Jötnar hafa þar með unnið 9 af 11 leikjum sínum í vetur. SA teflir fram tveimur liðum í U18, en SA Víkingar sitja í öðru sæti með 7 sigra í 11 leikjum. Bæði lið eiga einn leik eftir á tímabilinu, innbyrðis viðureign, en sá leikur dugar Víkingum ekki til að ná toppsætinu. SR og Fjölnir hafa bæði lokið leikjum sínum á tímabilinu.]]></description>